Um LOST.is
Vefverslunin Lost.is er rekin af Sjávarberg ehf kt.661101-2960
Markmið vefverslunnar Lost.is er að hafa á boðstólum fjölbreytt úrval af vöru á hagstæðu verði
með stuttum afhendingartíma.
Upplag vörumagns er mjög mismunandi og getur verið frá einu stykki upp í nokkra tugi.
Afhendingartími vörunúmers sem til er á lager á aldrei að fara yfir eina viku að öllu jöfnu ,en getur líka verið einungis nokkrir dagar.
Ef vörunúmer er ekki til á lager er kaupandi látin vita samstundis með tölvupósti.
'I sumum tilfellum er hægt að sérpanta inn fyrir kaupanda það á sérstaklega við í dálknum Handverk og hönnun og þá er afhendingar tíminn lengri og verður að finna út afhendingartíma fyrir hverja pöntun.
Póstkostnaður er greiddur af kaupanda og fundin ódýrasti sendingarmáti sem völ er á hverju sinni.
Að versla á lost.is
Þegar komið er á síðuna sem kölluð er vefverslun þá opnast margir gluggar með myndum þessir gluggar eru eins og hurðir inn í mismunandi deildir verslunarinnar.Þegar tvíklikkað er á mynd inn í þá deild sem viðskiptavinurinn hefur áhuga á að skoða þá opnast þar síða með fleiri myndum,sem líka þarf að tvíklikka á.'I sumum deildunum er flokkað í marga vöruflokka en svona getur viðskiptavinurinn haldið áfram og síðan stækkað það vörunúmer sem hann hefur áhuga á að panta með því að tvíklikka á það til að skoða það nánar og á stækkuðu síðunni þar eru ennfremur meiri upplýsingar um vörunúmerið.Þegar viðskiptavinurinn hefur ákveðið sig með eitthvert vörunúmerið þá er kominn tími til að biðja um að setja það í körfuna og síðan er hægt að snúa sér að næsta vörunúmeri og í körfuna má bæta við vörunúmerum þar til viðskiptavinurinn er tilbúin að panta.Þegar klikkað er á pöntunarhnappinn þá opnast síða þar sem vísar í mismunandi greiðsluform og einnig er beðið um ýmsar upplýsingar til að hægt sé að koma pöntuninni til viðskiptavinarins.Einnig er þar dálkur þar sem hægt er að koma sérstökum skilaboðum til afgreiðslufólksins.
Gangi ykkur vel.
Fyrir V/N fólk
Verðin hjá okkur eru sömu hvort sem greitt er með V/N eða öðrum gjaldmiðli.
Af gefnu tilefni viljum við benda á að allar vörur fyrir utan vöruflokkinn handverk og hönnun hjá vefversluninni eru á 50% V/N í handverksflokknum er tekið fram þar sem V/N prósenta á við.
Einnig eru oft tilboð hjá okkur og fara þá tiltekin vörunúmer hjá okkur upp í 75% og 100% V/N
Síðan getum við boðið þeim sem áhuga hafa á að fá sér helgarrúnt í Stykkishólm á að þeir geta komið við hjá okkur og kíkt á vöruúrvalið og við bendum þeim sem það vilja gera, að hringja á undan sér í síma 8660695 og vera vissir um að einhver sé við.
Það eru einungis 176 km. í Stykkishólm og tekur rúma 2 tíma að keyra þangað.
Stykkishólmur er mjög fallegur bær og vel þess virði að gera sér smá tilbreytingu þegar fer að vora
Fyrir hönd Lost.is
-Stefanía M. Aradóttir-
Framkvæmdastjóri
|