| Að versla á Lost.is |
|
|
|
| Skrifað af: Stefanía |
| Mánudagur, 14. júní 2010 16:54 |
Að versla á lost.isÞegar komið er á síðuna sem kölluð er vefverslun þá opnast margir gluggar með myndum þessir gluggar eru eins og hurðir inn í mismunandi deildir verslunarinnar. Þegar smellt er á mynd inn í þá deild sem þú hefur áhuga á að skoða þá opnast þar síða með fleiri myndum, sem líka þarf að smella á. Í sumum deildum er flokkað í marga vöruflokka en svona getur þú haldið áfram, svo getur þú að auki notað valmöguleikana sem eru til vinstri á síðunni. Þú getur séð nánari upplýsingar og stærri mynd á þeirri vöru sem þú hefur áhuga á að panta með því að smella á annað hvort mynd eða "sjá nánar" og á "sjá nánar" síðunni er í boði að senda inn spurningar í sambandi við vöruna. Ef þú ert skráð/skráður inn og hefur reynslu af vörunni er þér boðið að gefa henni umsögn og einkunn. Þegar þú hefur ákveðið þig með eitthverja vöru þá getur þú sett það í körfuna með einum smell og haldið áfram að skoða, í körfuna má bæta við vörum þar til þú er tilbúin að ganga frá pöntuninni. Í körfunni getur þú eytt út og aukið fjölda vöru sem er þegar þar. Þegar smellt er á "ganga frá" hnappin þá opnast síða sem þú getur skráð þig inná ef þú ert ekki þegar skráður inn (Smellir á "Nýr notandi? Vinsamlegast skráðu upplýsingar fyrir pöntun."). Svo smellir þú á "staðfesta pöntun" þegar þú ert full viss um að upplýsingarnar eru réttar og svo er smellt á "Borga með greiðslukorti" til að greiða pöntun þína. Svo sendum við þér vörurnar sem þú pantaðir eins fljótt og auðið er! Eða velur "Sækja pöntun.." og kemur til okkar hér í Lost, sækir pöntun þína og borgar á staðnum!
Ef þú þarf að koma eitthverjum upplýsingum að afgreiðslufólki þá getur þú notað flippan "Hafa samband" sem er staðsetur efst á síðunni eða hringt í síma: "566-7625" |
| Síðast uppfært: Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 16:34 |